Fréttir
29.8.2011
Žjįlfun ķ raunfęrnimati - nįmskeiš 14.-15. september
Námskeið í raunfærnimati verður haldið dagana 14. og 15. september hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins í Ofanleiti 2. og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Námskeiðið er samtals 15 kennslustundir og kennt er báða dagana frá 9-16.
Tilgangur námskeiðanna er að kynna fyrir þátttakendum hugtakið raunfærnimat og þjálfa þá í því að vinna við raunfærnimat samkvæmt því ferli sem þróað hefur verið hér á landi. Námskeiðið er liður í því að formfesta raunfærnimatsferlið, stuðla að gæðum og mæta síauknum þörfum. Námskeiðið er haldið af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Skráning og nánari upplýsingar:
Haukur Harðarson
haukur@frae.is
599-1400
Žś ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd




















