Beint į leišarkerfi vefsins
Aftur į forsķšu

Fréttir

19.5.2011

Verkefni FA "RECALL" og verkefni IŠUNNAR fręšsluseturs "GEMS" valin fyrirmyndarverkefni ķ Slóvenķu

Tvö íslensk Leonardo verkefni voru valin og kynnt sem fyrirmyndarverkefni á sviði gæðamála í starfsmenntun og fullorðinsfræðslu á ráðstefnu QALLL samstarfsverkefnisins sem haldin var í Slóveníu í vor.

Verkefnin sem um ræðir eru:
GEMS - Guidance for Educators Mentors and Students. (http://www.leogems.org/)
Stýristofnun er IÐAN fræðslusetur.

RECALL - Recognition of Quality in Lifelong Learning. http://www.europeanqualitymark.org/
Stýristofnun er Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.

REACHING EXCELLENCE var heiti ráðstefnunnar sem er fyrsta ráðstefna QALLL verkefnisins (Quality Assurance in Lifelong Learning with a Focus on Vocational Education and Training and Adult Education) sem er samstarfsverkefni 14 evrópulanda. Markmið QALLL er að stuðla að auknum gæðum í starfsmenntun og fullorðinsfræðslu og hafa góð verkefni á því sviði verið valin með það að markmiði að miðla upplýsingum og stuðla að yfirfærslu góðra lausna á sviði gæðamála.

Į heimasíðu verkefnisins er listi yfir og upplýsingar um yfir þau verkefni sem valin hafa verið. Áhugasamir eru hvattir til að skoða listann en þar geta verið önnur verkefni sem áhugavert væri að yfirfæra hingað til Íslands. Upplýsingar um verkefnin:  http://www.qalll.net/about_the_project/events/1st_qalll_conference_reaching_excellence/DE/

Fjola og Gudrun í Sloveniu
Fjóla María Lárusdóttir og Guðrún Reykdal kynntu RECALL verkefni
Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins í Slóveníu.


Žś ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gęši ķ fulloršinsfręšslu og starfsfręšslu į vinnumarkaši

Stjórnborš

Forsķša vefsins Stękka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Information in English