Fréttir
25.5.2010
Málstofa um fyrirmyndarverkefni
Sköpun, nýsköpun, sveigjanleiki og þverfaglegt samstarf bar oft á góma þegar rætt var um einkenni fyrirmyndarverkefnanna sem kynnt voru á málstofu á hótel Nordica Hilton í Reykjavík þann 18. maí sl.
Verkefnin eru dæmi um hvernig hægt er að beita menntun og fræðslu til þess að mæta breytingum á vinnumarkaði. Málstofan er hluti af færniþróunarverkefni NVL, með það að markmiði að bera kennsl á hvað einkennir velheppnuð færniþróunarverkefni sem hrint er í framkvæmd vegna breytinga á vinnumarkaði.
Dæmin átta, sem kynnt voru á málstofunni fólu í sér verkefni sem miðuð að byggðaþróun, færniaukningu, faglegri þróun og nýbreytni á sviði háskólamenntunar. Þátttakendur komu víða að, fulltrúar Mennta- og menningarmálaráðuneytis, Samtaka atvinnulífsins, ASÍ, menntavísindasviði HÍ sem og stjórnendur símenntunarmiðstöðva voru með á staðnum og aðrir fylgdust með á vefnum.
Verkefnin sem kynnt voru á málstofunni voru þessi (birtast hér í þeirri röð sem þau voru kynnt):
- Gildi starfa (Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir, Mímir-símenntun)
- Fræðsluverkefnið Eflum byggð (Bryndís Þráinsdóttir, Farskólinn á Norðurlandi vestra)
- Náms- og starfsráðgjöf á vinnustöðum (Fjóla María Lárusdóttir, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins)
- Hannað í málm (Hildur Elín Vignir, IÐAN fræðslusetur)
- Nýjar leiðir, menntaverkefni á Hornafirði (Ragnhildur Jónsdóttir, Þekkingarnet Austurlands)
- PRISMA (Hrund Gunnsteinsdóttir, Krád consulting)
- Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (Ingibjörg E. Guðmundsdóttir, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins)
- Átak gegn atvinnuleysi (Anna Lóa Ólafsdóttir, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum)
| |
|
| Hildur Elín Vignir kynnti verkefnið Hannað í málm | Hróbjartur Árnason stjórnaði umræðum |
Þú ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd




















