Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir

7.5.2010

Ný stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

Í nýjum samþykktum um Fræðslumiðstöð atvinnulífsins kemur fram að stjórn félagsins skuli skipuð átta mönnum, þremur sem ASÍ tilnefnir, þremur sem SA tilnefna, einum sem BSRB tilnefnir, og einum sem fjármálaráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefna saman, kjörnum á aðalfund til eins árs í senn. ASÍ skal tilnefna einn varamann fyrir fulltrúa sína, SA einn varamann fyrir fulltrúa sína, BSRB einn varamann fyrir fulltrúa sinn og fjármálaráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga einn varamann saman fyrir fulltrúa sinn.

Í nýrri stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sitja:

Halldór Grönvold, f.h. ASÍ (formaður stjórnar)
Guðrún Eyjólfsdóttir, f.h. SA (varaformaður stjórnar)
Atli Lýðsson, f.h. ASÍ
Árni Stefán Jónsson, f.h. BSRB
Finnbjörn A. Hermannsson, f.h. ASÍ
Guðmundur H. Guðmundsson, f.h. fjármálaráðuneytis
María Guðmundsdóttir, f.h. SA
Torfi Pálsson, f.h. SA

Arna Jakobína Björnsdóttir, f.h. BSRB (varamaður)
Guðfinna Harðardóttir, f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga (varamaður)
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, f.h. ASÍ (varamaður)
Jónína Gissurardóttir, f.h. SA, (varamaður)

Stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífins 2010
Ný stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins: Fremri röð frá vinstri: Atli Lýðsson,
Guðfinna Harðardóttir, María Guðmundsdóttir og Jónína Gissurardóttir. Aftari röð
frá vinstri: Guðmundur H. Guðmundsson, Finnbjörn A. Hermannsson, Halldór
Grönvold, Torfi Pálsson, Guðrún Eyjólfsdóttir og Árni Stefán Jónsson. Á myndina
vantar Örnu Jakobínu Björnsdóttur og Ingibjörgu R. Guðmundsdóttur.


Þú ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English