Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir

3.5.2010

Þitt val – þín leið, DVD diskur um námsmöguleika fyrir sjómenn

 Afhending Föstudaginn 30. apríl s.l. kynnti Sólrún Bergþórsdóttir útgáfu DVD disksins fyrir samstarfsaðilum og styrktaraðilum verkefnisins sem eru: Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Sjómennt (fræðslusjóður sjómanna), Landsamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja.

Í kynningu sinni um aðdraganda verkefnisins sagði Sólrún frá bakrunni sínum sem á rætur í samfélag sjómanna í Vestmanneyjum. Lengi vel snérist allt um fisk og sjómennsku í Eyjum og fátt annað í boði nema það sem tengdist sjávarútvegi.  Í dag hefur þetta breyst mikið og með aukinni tækni hafa tækifæri til menntunar aukist mikið.

Í starfi sínu sem náms- og starfsráðgjafi í Eyjum átti Sólrún í erfiðleikum að ná til sjómanna til að kynna þeim sína námsmöguleika. Þess vegna ákvað Sólrún að nýta sér tæknina og koma með kynninguna út til sjómannanna þ.e. í sjálfa bátana.

Á DVD diskinum er að finna almennar upplýsingar út á hvað náms- og starfsráðgjöf gengur, viðtal við náms- og starfsráðgjafa og síðast en ekki síst að þá eru viðtöl við fjóra sjómenn sem hafa farið í nám samhliða sínum störfum. Þar segja þeir frá sínum kringumstæðum, hvernig námið hafi gengið og stöðu sinni í dag.  

   
Birgir Héðinn  
.Birgir þurfti að fara í land vegna sjúkdóms  .Héðinn fór í stýrimanninn og rekstrarnám
Kristinn Þorbjörn
.Kristinn fór í B-stig vélstjóra  .Þorbjörn fór í stýrimanninn
   
 Skoða myndbandið  

Þú ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English