Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir

26.3.2010

Lög um framhaldsfræðslu

 

Markmið framhaldsfræðslu samkvæmt lögunum er:

  • a) að veita einstaklingum með stutta skólagöngu að baki aukin tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu,
  • b) að veita einstaklingum á vinnumarkaði með stutta formlega skólagöngu að baki viðeigandi námstækifæri og auðvelda þeim að hefja nám að nýju,
  • c) að gefa einstaklingum færi á að efla starfshæfni sína og efla ábyrgð þeirra í því tilliti,
  • d) að skapa svigrúm og úrræði til að mæta þörfum atvinnulífsins fyrir aukna þekkingu og hæfni starfsmanna,
  • e) að veita einstaklingum sem búa við skerta möguleika til náms eða atvinnuþátttöku framhaldsfræðslu þar sem tekið er mið af ójafnri stöðu þeirra og hæfni,
  • f) að afla viðurkenningar á gildi náms sem fellur utan hins formlega framhaldsskóla- og háskólakerfis,
  • g) að stuðla að því að nám og reynsla sem aflað er utan hins formlega skólakerfis verði metin að verðleikum og
  • h) að efla menntunarstig í landinu og íslenskt menntakerfi.

Ráðherra sér til þess að reglulega sé haft samráð við fræðsluaðila sem starfa á grundvelli laga þessara um framkvæmd framhaldsfræðslunnar. Ráðherra sér um að einstakar námskrár og námslýsingar verði vottaðar til að staðfesta að námið uppfylli almennar kröfur um skipulag og gæði kennslu, ásamt þeim sértæku kröfum sem gera má hverju sinni með tilliti til inntaks náms. Þeir sem hafa stutta formlega skólagöngu og kjósa að leggja stund á nám sem skipulagt er á grundvelli laga eiga rétt á að raunfærni þeirra sé metin. Matið fer fram samkvæmt reglum sem ráðherra setur um raunfærnimat og tilhögun þess. Sjá nánar á vef Alþingis


   
ÁhugavertGátt
 
 
   
Log um framhaldsfraedslu 
 
   
Áskoranir í raunf. kassi
 
 
Menntatorg
 
   
Mælistikan  
   
ÍslFyrirAlla   
   
Bókasafn   

Norrænt tengslanet um fullorðinsfræðslu
Value of Work - VOW

Þú ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English