Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir

15.1.2010

Ráðgjöf og raunfærnimat í brennidepli

Dagana 11. og 12. janúar var haldin í Keflavík ráðstefna um ráðgjöf og raunfærnimat sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Norræna tengslanetið um nám fullorðinna stóðu fyrir. Ráðstefnuna sóttu rúmlega 60 manns hvaðanæva af landinu.

Ólafur Grétar Kristjánsson, mennta- og menningarmálaráðuneytinu og fulltrúi Íslands í Stýrihópi Norrænu ráðherranefndarinnar um nám fullorðinna setti ráðstefnuna. Tveir frummælenda voru erlendir: Raimo Vourinen frá Finnlandi og Kirsten Aagard Frá Danmörku.

 Raimo2 Raimo Vourinen greindi frá þróun í ráðgjöf í Evrópu. Þar er lögð áhersla á einstaklinginn og samkvæmt nýrri skilgreiningu á ferli einstaklings, getur hann spannað víðara svíð en áður, vinnu, fjölskyldulíf, félagsmál og áhugamál. Í ljósi breytinga á aldurssamsetningu þjóðanna er víðast lögð áhersla að veita fólki endur- og símenntun til þess að tryggja lengri þátttöku á vinnumarkaði. 
 Kirsten2 Kirsten Aagaard fjallaði um þróun raunfærnimats í Danmörku. Þar er snýst stefnan um þessar mundir um það að gera menntun efnahagslega hagkvæma, fólk sé ekki að læra sama hlutinn tvisvar. Þrátt fyrir árangur á ýmsum sviðum eru enn margar hindranir á veginum, t.d. er ekki um að ræða neina fjármögnun á fyrri hluta ferlisins.

Þá fluttu tveir sérfræðingar FA erindi á ráðstefnunni, Fjóla María Lárusdóttir um náms- og starfsráðgjöf á vinnumarkaði,  þróun og stöðu mála og Haukur Harðarson fjallaði um stöðu raunfærnimats á Íslandi. Á ráðstefnunni voru ennfremur fjórar lotur með alls 8 vinnustofum um ýmis málefni sem tengjast ráðgjöf og raunfærni.


Þú ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English