Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir

4.1.2010

Ráðstefna um ráðgjöf og raunfærnimat 11. og 12. janúar 2010

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og NVL á Ísland bjóða til ráðstefnu um ráðgjöf og raunfærnimat dagana 11.- 12. janúar á Hótel Keflavík í Reykjanesbæ. Fyrri daginn verður fjallað um náms- og starfsráðgjöf fyrir fullorðna og seinni daginn um raunfærnimat.

Aðalfyrirlesarar verða Raimo Vourinen  og Kirsten Aagaard.  Fjóla María Lárusdóttir og Haukur Harðarson sérfræðingar á Fræðslumiðstöð atvinnulífsins greina frá þróun náms- og starfsráðgjafar og raunfærnimats á vinnumarkaði. Þá verða 8 vinnustofur með kynningum og umræðum um það sem efst er á baugi á þessum sviðum á Íslandi og áskoranir sem blasa við. 

Raimo Vourinen er fulltrúi Finna í sérfræðingahópi NVL um ráðgjöf og sérfræðingur í námsráðgjöf við Háskólann í Jyväskylä. Raimo er einnig  verkefnastjóri vinnuhóps um stefnumótun fyrir námsráðgjöf  á vegnum Evrópusambandsins ( European Lifelong Guidance Policy Network, ELGPN ) og þróun á miðstöð námsráðgjafar í Finnlandi.

Kirsten Aagard er fulltrúi Dana í sérfræðingahópi NVL um raunfærnimat. Hún er einnig framkvæmdastjóri fyrir Miðstöð raunfærnimats Danmerkur við VIA háskólann. Hún  starfaði áður sem stjórnandi á sviði kennslufræði og færniþróun fullorðinna við sama skóla.

Skráningargjald er 5000 kr. og í því er allt innifalið óháð hvort áætluð er þátttaka er aðeins annan daginn eða báða.

Skráning á  http://frae.is/radgjof-og-raunfaernimat

Sjá dagskrá

Þú ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English