Fréttir
27.11.2009
Fyrirmyndir ķ nįmi fulloršinna
Į ráðstefnunni „Úrræði til árangurs" hlutu þeir Sigtryggur Gíslason og Vilhjálmur Örn Halldórsson viðurkenningu fyrir að hafa skarað fram úr í námi fullorðinna á árinu 2009. Ráðstefna þessi var haldin sameiginlega af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Landsskrifstofu Menntaáætlunar ESB og fjallaði um menntun á vinnumarkaði í nútíð og framtíð.
Frá árinu 2006 hefur Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) í tengslum við ársfund sinn veitt verðlaun þeim einstaklingum sem hafa sýnt góðan námsárangur, frumkvæði og kjark og þar að auki náð að yfirstíga ýmis konar hindranir í sínu námi eins og t.d. námserfiðleika. Þessir þættir eiga svo sannarlega við verðlaunahafana árið 2009 sem stunduðu báðir sitt nám hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar (Símey).
Sigtryggur Gíslason og Vilhjálmur Örn Halldórsson hafa fylgst að í náminu hjá Símey og fóru báðir í gengum raunfærnimat í húsasmíðum. Raunfærnimat gengur út á það að fá raunverulega færni metna eins og t.d. starfsreynslu, starfsnám, frístundanám, skólanám, félagsstörf og fjölskyldulíf. Þá hafa þeir einnig báðir lokið námskeiðunum Aftur í nám og Skref til sjálfshjálpar en þessi námskeið hjálpa einstaklingum með læsisvanda en báðir eru þeir lesblindir. Í dag sækja þeir Sigtryggur og Vilhjálmur Örn báðir námsleiðina Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum hjá Símey.

Frá vinstri: Halldór Grönvold formaður stjórnar FA, Sigtryggur Gíslason og Vilhjálmur
Örn Halldórsson fyrirmyndir í námi fullorðinna og Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir
framkvæmdastjóri FA.
Sigtryggur Gíslason er 55 ára gamall og á þrjú uppkomin börn sem hafa öll fengið lesblindu föður síns í arf. Hann er þrautseigur, duglegur og hefur stundað margvísleg störf um ævina, t.d. verið bóndi til fjölda ára og sótt sjó en hefur í seinni tíð unnið mikið við smíðar. Sigtryggur og var ekki á leiðinni nám þegar hann var píndur eða eigin sögn til þess að skrá sig í raunfærnimatið.
Vilhjálmur Örn Halldórsson er 58 ára gamall, þriggja barna faðir og hafði algjörlega gefið hugmyndir um nám upp á bátinn þegar hann fór í raunfærnimatið. Á unglingsárum sínum bjó hann um fimm ára skeið í Bandaríkjunum en hefur meira og minna unnið við smíðar alla sína starfsævi. Vilhjálmur Örn er mjög lesblindur og náði aldrei almennilegum tökum á lestri og varð hann fyrir einelti í skóla á sínum yngri árum. Bóklegt nám hefur af þeim sökum ekki legið vel við honum en þeim mun sterkari í öllu sem snýr að handverki.
Markmiðið Fræðslumiðstöðvarinnar með viðurkenningunum er að vekja athygli á námsárangri fullorðinna einstaklinga sem hafa tekið þátt í viðfangsefnum FA í samstarfi við fræðslu- og símenntunarstöðvar og er þar átt við: Vottaðar námsleiðir, Raunfærnimat og Náms- og starfsráðgjöf.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins færði Sigtryggi og Vilhjálm Erni í viðurkenningarskyni fartölvur með forritum, leiðréttingarforritið Púka og viðurkenningarskjal. Ingibjörg E. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri FA, ræddi aðeins við verðlaunahafana og það var ekki laust við að fundarmenn kæmust við og vöknaði um augu undir lýsingum á þeim hremmingum sem þeir höfðu gengið í gegnum í skólanum á fyrri hluta ævinnar. Við afhendingu viðurkenninga stóðu gestir ráðstefnunnar úr sætum og hylltu sínar hetjur sem svo sannarlega standa undir nafni sem fyrirmyndir í námi fullorðinna. Megi afrek þeirra félaga vera hvatning fyrir aðra sem eiga við lestarerfiðleika að stríða.
Žś ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd




















