Fréttir
27.11.2009
Niðurstöður könnunar meðal lesblindra
Á ráðstefnunni „Úrræði til árangurs" kynnti Þóra Ásgeirsdóttir frá ráðgjafastofunni Kná niðurstöður úr rannsókn á árangri lestrar- og skriftarnámskeiða fyrir fullorðna sem glíma við læsisvanda. Í okkar samfélagi er stór hópur fullorðins fólks sem á í alvarlegum erfiðleikum með ritun og lestur. Í rannsókninni kemur greinilega fram hversu djúpstæð áhrif læsisvandinn hefur haft á líf þeirra einstaklinga sem glíma við hann og þann skort á umburðalyndi sem þau hafa upplifað og tækifærum sem þau hafa farið á mis við. Þá nefnir stór hluti sig hafa tekist á við einelti eða um 55%.

Þóra Ásgeirsdóttir kynnir niðurstöður könnunar meðal lesblindra.
Þóra sagði frá nokkrum samtölum sem hún tók við þátttakendur námskeiðanna í gegnum djúpviðtöl. Þar kom fram hversu djúpstæð áhrif lesblinda hefur haft á líf þessara einstaklinga. Þóra sagði sögu einstaklings sem hafði lent í einelti af sínum skólafélögum, kennurum og skólayfirvöldum vegna lestrarerfiðleika sinna. Annar sem stoltur tilkynnti sínum kennara að hann hefði lokið við sína fyrstu bók „Litlu gulu hænuna" fékk blauta tusku í andlitið. „Lestu hana þá aftur", sagði kennarinn við þennan unga lesblinda mann. Niðurbrot þessa einstaklings var algjört.
Í erindi Þóru kom fram að gagnsemi námskeiðanna er ótvíræð og gefa niðurstöðurnar tilefni til þess að frekari gaumur sé gefinn að aðstæðum fullorðinna með læsisvanda og hvernig við honum er brugðist s.s. á vinnustöðum og skólum. Innlendar og erlendar rannsóknir benda til þess að um 20% fullorðinna eigi í miklum vandræðum með lestur og/ eða ritun og um 5% eigi í talsverðum erfiðleikum. Til eru rannsóknir sem sýna enn hærri tölur.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar: Mjög margir þátttakenda lýsa því hvernig þátttaka í námskeiðunum hefur haft áhrif á líf þeirra til góðs og margir hafa haldið áfram námi. Næstum 97% þátttakenda segjast annaðhvort mjög eða frekar ánægð með námskeiðin. Rúm 60% segjast bæði lesa og skrifa meira en áður. Meira en 85% þátttakenda segist líða betur varðandi lestrar- eða skriftarörðugleika sína og sama hlutfall segir sjálfstraust hafa aukist. Þá hafa 55% farið í frekara nám og mjög margir eða 93% hafa hug á frekara námi.
Námskeiðin sem um ræðir eru; Aftur í nám og Skref til sjálfshjálpar í ritun og lestri og eru þau kennd hjá símenntunarmiðstöðvum um allt land. Þessum námsúrræðum, sem felast í ólíkum aðferðum við að hjálpa fullornum til að takast á við læsisvanda, er lýst í námsskrám gefnum út af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins vottuðum af menntamálaráðuneytinu.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins leiddi rannsóknina en framkvæmd var í höndum Kná ehf. Samstarfsaðilar Fræðslumiðstöðvarinnar í þessu verkefni voru: Mímir-símenntun, Kvasir, samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva og Félag lesblindra. Rannsóknin var fjármögnuð með styrk frá Starfsmenntaráði.
Viðtal hjá RÚV 30. nóvember 2009
Niðurstöður könnunar á meðal lesblindra, skýrslan í heild sinni
Þú ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd




















