Beint į leišarkerfi vefsins
Aftur į forsķšu

Fréttir

5.11.2009

IŠAN fręšslusetur virkjar išnašarmenn ķ atvinnuleit

Ķ vikunni var undirritaður samningur milli Vinnumálastofnunar, IÐUNNAR fræðsluseturs og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins  um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur.  Náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR fræðsluseturs munu með þessum samningi hvetja iðnaðarmenn í atvinnuleit, sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins, til virkni. Iðnaðarmann sem eru á atvinnuleysisskrá geta á grundvelli þessa samnings átt von á að vera kallaðir til skylduviðtals  á vegum IÐUNNAR fræðsluseturs, en ekki eingöngu hjá Vinnumálastofnun  eins og áður hefur verið.

 Samningur VMST, IÐAN og FA
Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, 
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar og Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri
IÐUNNAR fræðsluseturs skrifa undir samninginn.

Ķ dag er atvinnuleysi rúmlega 7% á landsmælikvarða . Skv. síðustu tölum frá Vinnumálastofnun voru um 2.200 iðnaðarmenn og aðrir sérhæfðir iðnverkamenn á atvinnuleysisskrá eða u.þ.b. 9,2% af starfsstéttinni en hlutfall þetta fór hæst í tæplega 14% í byrjun apríl á þessu ári.

Nánari upplýsingar veita:
Hildur Elín Vignir, sími 860-1206
Gissur Pétursson, sími 898-4507
Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, sími 898-1778


Žś ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gęši ķ fulloršinsfręšslu og starfsfręšslu į vinnumarkaši

Stjórnborš

Forsķša vefsins Stękka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Information in English