Fréttir
29.10.2009
Fleiri náms- og starfsráðgjafar virkjaðir í þágu atvinnuleitenda
Á miðvikudag var undirritaður samningur milli Vinnumálastofnunar, KVASIS, samtaka fræðslu- og símenntunarmiðstöðva og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur. Á vegum fræðslu- og símenntunarmiðstöðva starfa náms- og starfsráðgjafar, sem munu með þessum samningi taka þátt í að ná til atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hvetja þá til virkni.
Inga Dóra Halldórsdóttir, formaður KVASIS, Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar og Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri
Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins skrifa undir samninginn.
Atvinnuleysi er nú yfir 7% á landsmælikvarða, en mismunandi eftir svæðum. Mest er atvinnuleysið á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Þörfin fyrir náms- og starfsráðgjöf hefur aukist mjög mikið án þess að fjárveitingar hafi aukist í sama mæli til að mæta ráðgjafaþörfinni á vegum Vinnumálastofnunar.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur á grundvelli samnings ASÍ og SA við menntamálaráðuneytið greitt fyrir náms- og starfsráðgjöf hjá símenntunarmiðstöðvum. Umfang þess starfs eru um 7 föst stöðugildi náms- og starfsráðgjafa á 10 fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum um allt land . Auk þess hefur verið svigrúm til að greiða fyrir meiri vinnu námsráðgjafa eftir þörfum á hverju svæði fyrir sig. Það má því reikna með að sú aukning sem verður í náms- og starfsráðgjöf með þessum samningi sé á bilinu 7-9 þúsund einstaklingsviðtöl á ársgrundvelli. Það er góð viðbót við þá ráðgjafaþjónustu sem Vinnumálastofnun veitir en á þjónustuskrifstofum hennar starfa um 20 ráðgjafar sem geta áorkað um 20 - 25 þúsund einstaklingsviðtölum á ári.
Markmiðið með samningnum er fyrst og fremst að ná til þess stóra hóps sem er án framhaldsskólamenntunar og hefur verið lengst á atvinnuleysisskrá. Þeir sem hafa eingöngu grunnskólapróf, sem síðustu prófgráðu eru um 30% fólks á vinnumarkaði, en yfir 50% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá. Sami hópur er einnig stærstur af þeim sem eru langtímaatvinnulausir .
Það er þekkt staðreynd að langtímaatvinnuleysi getur haft varanleg áhrif á andlegt ástand og atvinnuhæfni fólks . Það er því sérstaklega mikilvægt að hægt sé að grípa inn í þá þróun fyrr en síðar.
Atvinnuleitendur geta á grundvelli þessa samnings átt von á að vera kallaðir til skylduviðtals á vegum fræðslu- og símenntunarmiðstöðvanna, en ekki eingöngu hjá Vinnumálastofnun eins og áður hefur verið.
Nánari upplýsingar veita:
Inga Dóra Halldórsdóttir, sími 863-0862
Gissur Pétursson, sími 898-4507
Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, sími 898-1778
Þú ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd
















