Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir

18.9.2009

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins fær styrk úr Menntaáætlun Evrópusambandsins

Nú í vikunni voru undirritaðir samningar um styrki úr Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins og var Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA)  einn styrkþega af þremur en hinir voru Myndlistaskólinn í Reykjavík og Landbúnaðarháskóli Íslands. Styrkupphæðir til einstakra verkefna eru rúmar 40 milljónir kr.

Öll verkefnin eiga það samnefnt svokölluð yfirfærsluverkefni en þau hafa það að markmiði að auka gæði og aðdráttarafl evrópska starfsmenntakerfisins með aðlögun og innleiðingu nýjunga á sviði starfsmenntunar til nýrra markhópa og starfsgreina innan starfsmenntakerfa í 31 Evrópulandi.

Verkefni FA heitir REVOW - Recognition of the Value of Work  (Viðurkenning á gildi starfa) og er yfirfærsla  á útkomu eldra verkefnis, Gildi starfa  - Value of work.  Eldra verkefnið, Gildi starfa, gekk út á að þróa og prófa mat á færni út frá ákveðnum fyrirfram skilgreindum viðmiðum og að hanna leiðbeinandi efni sem nýst gæti til yfirfærslu raunfærnimats í önnur störf en það verkefni hlaut m.a. verðlaun sem fyrirmyndarverkefni á fjölsóttri ráðstefnu í Prag sumarið 2009.

Nýja verkefni Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem er undir verkefnastjórn Ingibjargar Elsu Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra FA heitir eins og áður segir REVOW - Recognition of the Value of Work  (Viðurkenning á gildi starfa) og  miðar að því að yfirfæra þá reynslu og þekkingu enn frekar til annarra landa en þeirra sem tóku þátt í fyrra verkefninu. Markhópar eru bankastarfsmenn og tæknifólk í rafiðnaði. Sömuleiðis verður aðferðafræðin endurskoðuð og þróuð nánar, m.a. dýpkuð tenging við evrópskan viðmiðaramma. Verkefninu er ætlað að styrkja stöðu fólks á vinnumarkaði með stutt formlegt nám að baki.

Sjá fréttatilkynningu Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB um styrkveitinguna


Starfsmenn FA með REVOW samninginn. Frá vinstri: Haukur Harðarson sérfræðingur,
Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri og Guðrún Reykdal fjármálastjóri.


Þú ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English