Fréttir
11.9.2009
Könnun á norrænum verkfærum í tölvum sem notuð eru vegna raunfærnimats
![]() |
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins skipulagði fundi með Anne Marie Dahler-Larsen og Håkon Grunnet. Þau funduðu með fulltrúum frá FrumgreinaMennt Opna háskólans í HR og framkvæmdastjóra Studia, Þar var meðal annars fjallað um hvernig hægt er að skrá færnimöppu í Námsnetið (MySchool), eftir hvaða reglum umsækjendur eru metnir í frumgreinadeild, hvaða upplýsingar eru skráðar og hvernig er haldið utan um þær í Námsnetinu. Iðan fræðslusetur. Þar var meðal annars fjallað um hvernig náð er til markhóps á höfuðborgarsvæðinu og utan þess, undirbúning og framkvæmd skimunar/raunfærnimats, skráningu upplýsinga og reynslu Iðunnar af framkvæmd verkefna. Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins þar sem var lýst hvernig náð er til markhóps á höfuðborgarsvæðinu og utan þess, undirbúning og framkvæmd skimunar og raunfærnimats meðal annars með notkun fjarfundabúnaðar, tölvupósta, lestur kennsluefnis sem er aðgengilegt á Netinu og reynslu Fræðsluskrifstofunnar af framkvæmd verkefna. |
|
![]() |
Fjölbrautaskólann í Breiðholti , sem hefur tekið á móti námsmönnum eftir raunfærnimat. Fjallað var um þátt skólans í raunfærnimati, þátt náms- og starfsráðgjafa skólans vegna þeirra sem hafa farið í raunfærnimat, hvernig INNA kemur við sögu í þessu og hvernig raunfærnimetnum farnast í skólanum. |
|
Menntamálaráðuneytið þar sem áhersla var lögð á á hugmyndafræði, undirbúning og framkvæmd INNU og SKINNU af sjónarhóli menntamálaráðuneytisins auk reynslunnar af gagnagrunnum af þessu tagi og framtíðarsýnar um gagnagrunna og notkun verkfæra í tölvum með færslu og viðhald gagna í huga. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins þar sem þeim voru kynnt sjónarmið miðstöðvarinnar og undirbúningur fyrir þátt miðstöðvarinnar í raunfærnimati. Einnig fjármögnun, þjálfun matsaðila og framtíðarhorfur raunfærnimats í ljósi reynslunnar og í ljósi væntanlegra laga um framhaldsfræðslu. Liður í undirbúningi könnunar þeirra Anne Marie Dahler-Larsen og Håkon Grunnet var skýrsla sem þau tóku saman og er hægt að ná í hér |
Þú ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd






















