Fréttir
16.6.2009
Verkefni Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins „Gildi starfa“ valið sem fyrirmyndarverkefni á fjölsóttri ráðstefnu í Prag
Verkefni Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins „Gildi starfa" var annað þessara verkefna og kynnti Ingibjörg E. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins verkefnið á ráðstefnunni. Verkefnið „Gildi starfa" eða „Value of work" gengur út á að þróa og prófa mat á færni út frá ákveðnum fyrirfram skilgreindum viðmiðum og að hanna leiðbeinandi efni sem nýst gæti til yfirfærslu raunfærnimats í önnur störf. Þetta var samstarfsverkefni sex Evrópulanda og í hverju þeirra tóku fyrirtæki virkan þátt í vinnunni sem er mikilvægt skref í því að veita fyrirtækjum góða yfirsýn yfir þann mannauð sem þau hafa yfir að ráða.
Hitt íslenska verkefnið sem einnig var valið fyrirmyndarverkefni var verkefnið „Starfsendurhæfing öryrkja" sem Soffía Gísladóttir stýrði. Ráðstefnugestir voru um 150 talsins frá yfir 20 Evrópulöndum og fór þátttaka fram úr björtustu vonum. Ennfremur voru 31 verkefni frá rúmlega 20 Evrópulöndum kynnt á ráðstefnunni. Viðfangsefni þeirra voru afar fjölbreytt en áttu það þó sameiginlegt að benda á mikilvægi þess að meta með formlegum hætti þá færni og hæfni sem fólk á vinnumarkaði hefur tileinkað sér með það að markmiði að nýta og viðurkenna betur þá reynslu og þekkingu sem aðeins hagnýt reynsla í starfi veiti.

Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir (3. frá hægri) og Soffía Gísladóttir (lengst til vinstri) taka við verðlaunum.
Þú ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd




















