Fréttir
28.4.2009
Stiklur og hljóðglærur
Fyrri daginn verður fjallað um fullorðna nemendur og forsendur þeirra; einkenni fullorðinna námsmanna, mismunandi námsnálgun og aðferðir. Lögð er áhersla á þátttöku, verkefnavinnu og hagnýta tengingu. Námsþátturinn verður 7 kennslustundir.
Seinni dag námskeiðsins verður fjallað um forrit fyrir glærugerð, hljóðglærugerð og hljóðritanir til að birta á Netinu og spila í tónhlöðum. Glærugerð verður æfð með hliðsjón af aðferðinni „fá orð og fínar myndir" og æfður frágangur þeirra á vefinn. Einnig verður æfð hljóðritun og frágangur hljóðskráa fyrir Netið og tónhlöður. Kynnt forrit fyrir myndskeiðavinnslu, hljóðvinnslu, glærugerð og framsetningu á vefsíðu. Námsþátturinn verður 7 kennslustundir.
Þú ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd




















