Beint į leišarkerfi vefsins
Aftur į forsķšu

Fréttir

30.11.2009

Stiklur 1 og 2 į Höfn ķ Hornafirši

Dagana 19. og 20. nóvember voru kennslufræðinámskeiðin Stiklur 1 og Stiklur 2 haldin í Nýheimum á Höfn í Hornafirði.

27.11.2009

Fyrirmyndir ķ nįmi fulloršinna

Į ráðstefnunni „Úrræði til árangurs" hlutu þeir Sigtryggur Gíslason og  Vilhjálmur Örn Halldórsson viðurkenningu fyrir að hafa skarað fram úr í námi  fullorðinna á árinu 2009. Ráðstefna þessi var haldin sameiginlega af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Landsskrifstofu Menntaáætlunar ESB og fjallaði um menntun á vinnumarkaði í nútíð og framtíð.

27.11.2009

Nišurstöšur könnunar mešal lesblindra

Į  ráðstefnunni „Úrræði til árangurs" kynnti Þóra Ásgeirsdóttir frá ráðgjafastofunni Kná niðurstöður úr rannsókn á árangri lestrar- og skriftarnámskeiða fyrir fullorðna sem glíma við læsisvanda. Í okkar samfélagi er stór hópur fullorðins fólks sem á í alvarlegum erfiðleikum með ritun og lestur. Í rannsókninni kemur greinilega fram hversu djúpstæð áhrif læsisvandinn hefur haft á líf þeirra einstaklinga sem glíma við hann og þann skort á umburðalyndi sem þau hafa upplifað og tækifærum sem þau hafa farið á mis við. Þá nefnir stór hluti sig hafa tekist á við einelti eða um 55%.

27.11.2009

Įrsfundur Fręšslumišstöšvar atvinnulķfsins 2009

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hélt ársfund sinn þann 26. nóvember sl. Fundurinn var fyrri daginn af tveggja daga ráðstefnu sem var haldin í samstarfi við Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB.

24.11.2009

Stiklur 1 og 2 į Höfn ķ Hornafirši

Dagana 19. og 20. nóvember voru kennslufræðinámskeiðin Stiklur 1 og Stiklur 2 haldin í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Námskeiðin sóttu níu starfsmenn og kennarar sem koma að fullorðinsfræðslu á vegum Þekkingarnets Austurlands og er það vel að verki staðið hjá heimamönnum á Höfn að ná þetta stórum hópi fullorðinsfræðsluaðila á námskeið.  Almenn ánægja ríkti með að fá svona námskeið heim í hérað og var ákveðið að stefna að því að hafa fleiri Stiklunámskeið síðar í vetur, væntanlega í febrúar. Nú eru 7 mismunandi kennslufræðinámskeið í boði fyrir samstarfsaðila Fræðslumiðstöðvarinnar og fleiri eru í þróun. Sjá lýsingar á námskeiðunum hér

21.11.2009

Veršum viš menntašri eftir kreppuna?

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra skrifaði meðal annars þetta um menntamál í FRÉTTABLAÐIÐ 20. nóvember 2009:

5.11.2009

IŠAN fręšslusetur virkjar išnašarmenn ķ atvinnuleit

Ķ vikunni var undirritaður samningur milli Vinnumálastofnunar, IÐUNNAR fræðsluseturs og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins  um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur.  Náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR fræðsluseturs munu með þessum samningi hvetja iðnaðarmenn í atvinnuleit, sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins, til virkni. Iðnaðarmann sem eru á atvinnuleysisskrá geta á grundvelli þessa samnings átt von á að vera kallaðir til skylduviðtals  á vegum IÐUNNAR fræðsluseturs, en ekki eingöngu hjá Vinnumálastofnun  eins og áður hefur verið.

Žś ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gęši ķ fulloršinsfręšslu og starfsfręšslu į vinnumarkaši

Stjórnborš

Forsķša vefsins Stękka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Information in English