Fréttir
14.12.2009
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hélt ársfund sinn þann 26. nóvember sl. Fundurinn var fyrri daginn af tveggja daga ráðstefnu sem var haldin í samstarfi við Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB.
30.11.2009
Dagana 19. og 20. nóvember voru kennslufræðinámskeiðin Stiklur 1 og Stiklur 2 haldin í Nýheimum á Höfn í Hornafirði.
27.11.2009
Į ráðstefnunni „Úrræði til árangurs" hlutu þeir Sigtryggur Gíslason og Vilhjálmur Örn Halldórsson viðurkenningu fyrir að hafa skarað fram úr í námi fullorðinna á árinu 2009. Ráðstefna þessi var haldin sameiginlega af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Landsskrifstofu Menntaáætlunar ESB og fjallaði um menntun á vinnumarkaði í nútíð og framtíð.
27.11.2009
Į ráðstefnunni „Úrræði til árangurs" kynnti Þóra Ásgeirsdóttir frá ráðgjafastofunni Kná niðurstöður úr rannsókn á árangri lestrar- og skriftarnámskeiða fyrir fullorðna sem glíma við læsisvanda. Í okkar samfélagi er stór hópur fullorðins fólks sem á í alvarlegum erfiðleikum með ritun og lestur. Í rannsókninni kemur greinilega fram hversu djúpstæð áhrif læsisvandinn hefur haft á líf þeirra einstaklinga sem glíma við hann og þann skort á umburðalyndi sem þau hafa upplifað og tækifærum sem þau hafa farið á mis við. Þá nefnir stór hluti sig hafa tekist á við einelti eða um 55%.
27.11.2009
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hélt ársfund sinn þann 26. nóvember sl. Fundurinn var fyrri daginn af tveggja daga ráðstefnu sem var haldin í samstarfi við Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB.
24.11.2009
Stiklur 1 og 2 į Höfn ķ Hornafirši
Dagana 19. og 20. nóvember voru kennslufræðinámskeiðin Stiklur 1 og Stiklur 2 haldin í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Námskeiðin sóttu níu starfsmenn og kennarar sem koma að fullorðinsfræðslu á vegum Þekkingarnets Austurlands og er það vel að verki staðið hjá heimamönnum á Höfn að ná þetta stórum hópi fullorðinsfræðsluaðila á námskeið. Almenn ánægja ríkti með að fá svona námskeið heim í hérað og var ákveðið að stefna að því að hafa fleiri Stiklunámskeið síðar í vetur, væntanlega í febrúar. Nú eru 7 mismunandi kennslufræðinámskeið í boði fyrir samstarfsaðila Fræðslumiðstöðvarinnar og fleiri eru í þróun.
Sjá lýsingar á námskeiðunum hér
21.11.2009
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra skrifaði meðal annars þetta um menntamál í FRÉTTABLAÐIÐ 20. nóvember 2009:
5.11.2009
Ķ vikunni var undirritaður samningur milli Vinnumálastofnunar, IÐUNNAR fræðsluseturs og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur. Náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR fræðsluseturs munu með þessum samningi hvetja iðnaðarmenn í atvinnuleit, sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins, til virkni. Iðnaðarmann sem eru á atvinnuleysisskrá geta á grundvelli þessa samnings átt von á að vera kallaðir til skylduviðtals á vegum IÐUNNAR fræðsluseturs, en ekki eingöngu hjá Vinnumálastofnun eins og áður hefur verið.
29.10.2009
Į miðvikudag var undirritaður samningur milli Vinnumálastofnunar, KVASIS, samtaka fræðslu- og símenntunarmiðstöðva og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur. Á vegum fræðslu- og símenntunarmiðstöðva starfa náms- og starfsráðgjafar, sem munu með þessum samningi taka þátt í að ná til atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hvetja þá til virkni.
20.9.2009
Ráðstefna um raunfærnimat var haldin 3. september 2010 á Grand Hótel. Ráðstefnan var í umsjón NVL í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
18.9.2009
Nú í vikunni voru undirritaðir samningar um styrki úr Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins og var Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) einn styrkþega af þremur en hinir voru Myndlistaskólinn í Reykjavík og Landbúnaðarháskóli Íslands. Styrkupphæðir til einstakra verkefna eru rúmar 40 milljónir kr.
11.9.2009
Dagna 7. og 8. september heimsóttu Anne Marie Dahler-Larsen og Håkon Grunnet Ísland á vegna könnunar á verkfærum sem notuð eru í tölvum til að skrá upplýsingar vegna raunfærnimats.
21.8.2009
IÐAN fræðslusetur býður upp á raunfærnimat fyrir ófaglært starfsfólk í ýmsum iðngreinum. Verkefnið er kallað "Bættu um betur".
16.6.2009
Tvö íslensk Leónardóverkefni voru valin fyrirmyndarverkefni á ráðstefnunni „Keeping On Track" var haldin í Prag þann 4. til 5. júní sl. en samtals voru sex verkefni valin sem fyrirmyndarverkefni úr hópi rúmlega 100 Evrópuverkefna.
3.6.2009
Ķ lok maí útskrifuðust 11 manns úr 160 kennslustunda námi sem nefnist Færni í ferðaþjónustu. Framkvæmd og kennsla var í höndum Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum.
28.4.2009
Námskeiðið verður haldið hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða dagana 28. og 29. apríl. Námskeiðið er ætlað leiðbeinendum fullorðinna. Fyrri daginn verður fjallað um fullorðna nemendur og forsendur þeirra. Seinni dag námskeiðsins verður fjallað um forrit fyrir glærugerð, hljóðglærugerð og hljóðritanir til að birta á Netinu og spila í tónhlöðum.
26.4.2009
Námskeiðið verður haldið hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum laugardaginn 25. apríl. Á námskeiðinu verður fjallað um forrit fyrir glærugerð, hljóðglærugerð og hljóðritanir til að birta á Netinu og spila í tónhlöðum.
21.4.2009
Meðlimir faghópa NVL á Íslandi hittust á fundi í Skeifunni 8, þriðjudaginn 15. apríl sl. Markmið fundarins var kynning á verkefnum faghópa NVL á Íslandi. Starfsemi faghópanna hefur lagt lóð á vogarskálarnir í mikilvægri umræðu um fullorðinsfræðslu á Íslandi.
25.3.2009
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur verið falið að vista NVL ,Norrænt tengslanet um nám fullorðinna á Íslandi, fram til 31. Desember 2011.
9.3.2009
Föstudaginn 6. mars 2009 var opið hús í Skeifunni 8 frá kl. 14-18. Ýmsir fræðsluaðilar kynntu nám og ýmis úrræði fyrir atvinnulausa. Þessi viðburður fékk nafnið Menntatorg.
18.2.2009
Námskeiðið verður haldið í Rósenborg á 3. hæð gamla barnaskólans á Akureyri við Skólastíg 2, dagana 20. febrúar kl. 14-17 og 21. febrúar kl. 9-17. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. Þátttakendur fá afhent námskeiðsgögn ásamt möppu með sýnishornum af ýmsum gerðum verkefna, námsáætlanir, lýsingar á kennsluaðferðum og kennsluleiðbeiningar.
3.2.2009
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins mun standa fyrir þjálfun/námskeiði fyrir matsaðila (kennara/fagaðila, verkefnastjóra í raunfærnimati, náms- og starfsráðgjafa) í raunfærnimati.