Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir

28.11.2007

Ársfundur 5. starfsárs Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins 28. nóvember.

Arsf2007Fundarg 

  

Á fundinum fengu Elín Þór Björnsdóttir og Kornína Óskarsdóttir viðurkenningu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins fyrir að vera „FYRIRMYND Í NÁMI FULLORÐINNA 2007”.

16.11.2007

Virk samfélagsþátttaka frá sjónarhóli símenntunar

Boðið var til kynningar og umræðna um vald, lýðræði og virka samfélagsþátttöku á málþingi í Norræna húsinu föstudaginn 16. nóvember 2007.  Að málþinginu stóð NVL á Íslandi sem er norrænt tengslanet um nám fullorðinna og Leikn, samtök fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi.

Tilefni þessa málþings var m.a. að vekja athygli á safnritinu DEMOS og gera tilraun til að verða kveikja að umræðu um vald, menntun og lýðræði í okkar samfélagi.   

31.5.2007

Samningur um raunfærnimat við Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins hafa undirritað samning um raunfærnimat.

15.5.2007

Fyrsti samningur um raunfærnimat undirritaður

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og fræðslusetrið IÐAN hafa undirritað samning um raunfærnimat. Þetta er fyrsti samningur sem gerður er um raunfærnimat eftir að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hóf þróunarvinnuna samkvæmt samningi við menntamálaráðuneytið frá miðju ári 2003.

4.5.2007

Erindi og málstofur um raunfærnimat 4. maí

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) og Norrænt tengslanet um fullorðisnfræðslu stóðu fyrir ráðstefnu og þremur málstofum um mat á raunfærni.

27.4.2007

Raunfærnimat í atvinnulífinu

19 bankastarfsmenn í þremur bönkum fóru í gegnum raunfærnimat.  Matið var byggt á færnimöppu, sjálfsmati, viðtölum, mati yfirmanns og mati í gegnum raundæmi.

22.3.2007

Náms- og starfsráðgjöf á vinnustað

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og símenntunarmiðstöðvar um land allt gerðu með sér samninga um náms- og starfsráðgjöf á vinnustað.

9.3.2007

Stjórn og starfsmenn VR í heimsókn

Stjórn og starfsmenn VR kynntu sér starfsemi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Mímis-símenntunar í Skeifunni 8. Heimsóknin var liður í undirbúningi fyrir umræður um fræðslumál í félaginu.

15.1.2007

Náms- og starfsráðgjöf í atvinnulífinu og Nordplus Voksen

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Norræna tengslanetið um nám fullorðinna (NVL) buðu til námsstefnu í  Norræna húsinu mánudaginn 15. janúar 2007. Efni námsstefnunnar var Náms- og starfsráðgjöf í atvinnulífinu og Nordplus Voksen.


Þú ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English