Fréttir
24.11.2006
Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins 2006
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hélt ársfund sinn 23. nóvember s.l. á Grand hóteli. Fundinn sátu um 50 manns. Fundarstjóri var Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
15.11.2006
Lausnir fyrir fólk sem stríðir við lestrar- og ritörðugleika kynntar á DVD
Á DVD diski, sem samtök á öllum Norðurlöndunum standa að, eru kynntar lausnir fyrir fólk sem á við lestrar- og ritörðugleika að stríða. Á diskinum er sýnt hvernig tæknibúnaður er aðlagaður þeim sem eiga í erfiðleikum með lestur og skrift til að bæta þeim upp fötlun sína bæði í hversdagslífinu og á vinnustaðnum. Diskurinn var kynntur 15. nóvember á fjarfundi milli allra Norðurlandanna. Um 20 manns sátu fundinn hér á landi. Eftir fjarfundinn voru fjörlegar umræður.
2.10.2006
Fjórði fundur tilraunaverkefnisins The Value of Work (VOW)
Fundurinn var haldinn í Kaupmannahöfn dagana 27. - 30. september. Meðlimir úr faghópum landanna voru meðal þátttakenda.
2.10.2006
Raunfærni - Raunfærnimat
Bæklingur um raunfærni og mat á raunfærni er kominn út. Bæklingurinn er einkum ætlaður væntanlegum samstarfsaðilum í verkefnum sem tengjast raunfærnimati.
1.9.2006
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins flytur!
Í dag, 1. september, flutti Fræðslumiðstöð atvinnulífsins starfsemi sína af Grensásvegi 16a á aðra hæð Skeifunnar 8. Hæðina leigir Fræðslumiðstöð atvinnulífsins en framleigir öðrum stofnunum og fyrirtækjum lang stærsta hlut hennar.
Þau sem ekki vita hvar Skeifan 8 er geta krækt sér í götukort með því að smella hér
11.7.2006
Aukin framlög til fullorðinsfræðslu og starfsmenntamála
22. júní náðist samkomulag milli Alþýðusambands Íslands og landssambanda þess annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um endurskoðun kjarasamninga. Samtímis gaf ríkisstjórnin út yfirlýsingu um aðgerðir tengdar endurskoðuninni. Meðal þes sem er að finna í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er að framlög til fullorðinsfræðslu og starfsmenntamála verða aukin.
23.5.2006
Undirritun samninga um átak í menntun fyrir vinnumarkaðinn.
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir samkomulagi ASÍ og SA um áframhaldandi gildi kjarasamninga í nóvember 2005 ákvað ríkisstjórnin að beita sér fyrir sérstöku átaki til að efla starfs- og endurmenntun einstaklinga með litla formlega menntun, jafnframt því að bæta stöðu erlends vinnuafls í íslensku samfélagi. Í nýjum þjónustusamningi milli menntamálaráðuneytisins og ASÍ / SA, sem undirritaður var í 26. janúar, var Fræðslumiðstöð atvinnulífsins falið að að þróa og framkvæma verkefnin sem yfirlýsingin kvað á um.
17.5.2006
Samningur við Starfsgreinaráð fjármála-,verslunar- og skrifstofugreina
Starfsgreinaráð fjármála-,verslunar- og skrifstofugreina og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins undirrituðu samning 16. maí s.l. Meginefni samningsins er að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins tekur að sér að greina þarfir og útbúa viðmið um úrvalsnámsefni sem hentar nýrri námsskrá fyrir starfsnám í þjónustugreinum. Námsskráin er tilbúin og hefur starfsgreinaráðið þegar lagt hana fram. Um er að ræða tveggja ára námsbraut í fjármála-, verslunar- og skrifstofugreinum.
16.5.2006
Þegar fullorðnir læra
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins stóð fyrir námskeiði um námsnálgun fullorðinna 11. og 12. maí á Nordica hótel, Reykjavík. 43 leiðbeinendur fullorðinna sátu námskeiðið. Góður rómur var gerður að efni og flutningi Ingemars Svantessonar sem stýrði námskeiðinu.
27.1.2006
Undirritun þjónustusamnings
Þjónustusamningur milli menntamálaráðuneytisins annars vegar og Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins hins vegar var undirritaður fimmtudaginn 26. janúar. Undirritunin fór fram í framleiðslusal Össurar hf. að Grjóthálsi 1-3. Samningurinn gildir til ársloka 2009.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir undirritaði samninginn fyrir hönd menntamálaráðuneytisins en Ingibjörg R. Guðmundsdóttir fyrir hönd ASÍ og Þorgeir Baldursson fyrir hönd SA.
Þú ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd




















