Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir

16.11.2005

Úr yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninga

Í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins hefur ríkisstjórnin ákveðið að beita sér fyrir sérstöku átaki til að efla starfs- og endurmenntun ófaglærðra og einstaklinga með litla menntun, jafnframt því að bæta stöðu erlends vinnuafls í íslensku samfélagi. Áætlað er að kostnaður vegna þessa nemi 100 m.kr. á árinu 2006.

17.10.2005

Samstarfssamningur

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks og Fagráð verslunar- og þjónustugreina undirrituðu samstarfssamning 14. október s.l. Samningurinn gildir til 31. desember 2006.

4.10.2005

Leonardo verkefni undir stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur fengið styrk frá Leonardo Da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins að upphæð 30 milljónir í tilraunverkefni sem ber titilinn “The Value of Work.”  Verkefnið miðar að því að þróa aðferðir til að meta raunverulega færni einstaklinga í atvinnulífinu. Fræðslumiðstöðin mun stýra verkefninu. Samstarfslönd eru Danmörk, England, Kýpur, Slóvenía og Svíþjóð.

19.8.2005

FA fær styrk frá Evrópusambandinu

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur staðfest styrkupphæðir fyrir árið 2005 til þátttökulanda Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunarinnar. Fræðslumiðstöð Atvinnulífsins fékk styrk til verkefnisins: The Value of Work – þróun aðferða við mat á raunfærni.

 

2.5.2005

Leikn, samtök fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi

Leikn, samtök fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi voru stofnuð mánudaginn 25. apríl 2005.

28.1.2005

Nýtt starfsnám - verslunarfagnám

Tilraunaverkefni um verslunarfagnám á Íslandi fór af stað nú í byrjun janúar 2005. Fagnámið er hannað fyrir starfandi fólk í verslunum. Undirbúningur verkefnisins hófst haustið 2003. Frumkvæði að því áttu Samtök verslunar og þjónustu og nokkrar stórverslanir.  Leitað var til FA um að taka að sér verkið og stýra því í samstarfi við SVÞ og VR sem áttu fulltrúa í stýrihópi.

12.1.2005

Norrænt tengslanet um fullorðinsfræðslu NVL

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins íslenskur tengiliður í norrænu neti um fullorðinsfræðslu


Þú ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English