Fréttir
16.11.2004
Samstarfssamningur undirritaður milli KVASIS, samtaka fræðslu- og símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
12. nóvember sl. var undirritaður samstarfssamningur milli Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og símenntunarmiðstöðva innan Kvasis, samtaka fræðslu- og símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni.
3.9.2004
Stórt skref í mati á óformlegu námi
Menntamálaráðuneytið staðfestir mat á 5 námsleiðum Mímis-símenntunar til eininga í framhaldsskólanámi. Innan tíðar verða fleiri námsskrár yfirfarnar. Samstarfsaðilar geta falið Fræðslumiðstöð atvinnulífsins að yfirfara námsleiðir og námsskrár með það fyrir augum að þær verði metnar til eininga í framhaldsskólanámi.
14.4.2004
Áfanga náð í verslunarnámi
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) fékk sent erindi frá Samtökum verslunar og þjónustu (SVÞ), dagsett 23. júní 2003, þar sem þess er óskað að FA beiti sér fyrir því að hafið yrði tilraunaverkefni í skipulagðri fræðslu fyrir almenna starfsmenn í verslunum.
FA samþykkti að taka að sér umsjón verkefnisins, vinna að greiningu fræðsluþarfa og gera námsmarkmið útfrá þeirri niðurstöðu.Styrkur fékkst frá Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks til að vinna að þarfagreiningunni og setningu námsmarkmiða. Verkinu lauk 1. apríl s. l. Frekari aðkoma FA er háð samningi milli aðila þegar þessum fyrsta hluta er lokið.
Nokkrar atrennur hafa verið gerðar til að finna heppilegt nafn á námið og starfsheiti í framhaldi af því. Ennþá er leitað að heppilegu heiti.
11.3.2004
Námskeið fyrir leiðbeinendur
Sigrún Jóhannesdóttir hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins heldur fjögurra daga námskeið fyrir leiðbeinendur Mímis-símenntunar
18.2.2004
Raunfærni
| Sunnudaginn 8. febrúar, 2004 - Tímarit Morgunblaðsins |
|
Eitt sinn ætlaði Sigríður Árnadóttir í framhaldsnám í líffræði og vildi sérhæfa sig í bakteríum. Framhaldsnám hennar varð hins vegar fréttamennska undir handleiðslu mætra kvenna og karla á fréttastofu Ríkisútvarpsins. Sigríður fékk fjölmiðlabakteríuna og stýrir nú fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar. |
22.1.2004
Vegir liggja til allra átta...
Félagsmenn í Eflingu-stéttarfélagi, Hlíf og V.S.F.K. eiga kost á að fá námsráðgjafa á vinnustað.
16.1.2004
Gildi menntunar
Sigurbjörg Ásgeirsdóttir bensínafgreiðslumaður skrifar um gildi menntunar í FRÉTTABLAÐIÐ 16. janúar 2004
Fyrir nokkrum dögum kynnti Hagfræðistofnun Háskóla Íslands skýrslu um mennta-reikninga sem unnin var að frumkvæði Eflingar, Verslunarmannafélags Reykjavíkur og Starfsmenntaráðs. Með menntareikningum er átt við að launþegi leggi fyrir ákveðna prósentu af launum sínum og mótframlag komi frá atvinnurekanda og ríkisvaldinu. Þetta yrði þá einhvers konar útfærsla á núverandi séreignalífeyrissparnaði. Bæði stéttarfélögin ætla að fara fram með kröfu um menntareikninga í komandi kjara-samningum og ber að fagna því.
Þú ert hér:
FréttirLeit
Toppmynd




















