Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir

21.11.2003

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins opnuð formlega

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins var opnuð formlega í húsakynnum félagsins föstudaginn 21. nóvember. Menntamálaráðherra flutti ávarp, Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri, kynnti starfsemina, Jón Gnarr flutti hugvekju í fjarfundarbúnaði frá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og Kristinn Árnason, gítarleikari lék nokkur lög. Nokkrar myndir frá opnuninni neðarlega á síðunni.

13.11.2003

Öfugar áherslur í starfsnámi

Emil B. Karlsson skrifar grein í FRÉTTABLAÐIÐ 13. nóvember og segir að: SVÞ og fulltrúar stærstu verslunarfyrirtækjanna hafa óskað eftir því við menntamálaráðuneytið að hafinn verði undirbúningur að skipulegri starfsfræðslu fyrir almenna starfsmenn verslana. Því erindi var hafnað. Hin nýstofnaða Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf., sem hefur það hlutverk að ná til ófaglærðra á vinnumarkaði, hefur nú tekið að sér að vinna málinu framgang og eru miklar vonir bundnar við það.

10.11.2003

Stundar nú nám við Kennaraháskólann

„Nú er draumur minn að rætast!” Fréttablað Eflingar-stéttarfélags ræðir við Helgu Ösp Jóhannsdóttur, leiðbeinanda á Vesturborg.


Þú ert hér:

Fréttir

Toppmynd

Auka gæði í fullorðinsfræðslu og starfsfræðslu á vinnumarkaði

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English