Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
| Kynning á starfsemi FA vegna aðkomu opinberra aðila að starfinu | ||||||||||||||||||||
| 1. júní fór fram kynningarfundur um starfsemi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA). Tilefni fundarins var að BSRB, fjármálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga bættust í hóp eigenda Fræðslumiðstöðvarinnar. Sjá nánar | ||||||||||||||||||||
|
Málstofa um fyrirmyndarverkefni |
||||||||||||||||||||
|
Sköpun, nýsköpun, sveigjanleiki og þverfaglegt samstarf bar oft á góma þegar rætt var um einkenni fyrirmyndarverkefnanna sem kynnt voru á málstofu á hótel Nordica Hilton í Reykjavík þann 18. maí sl. |
||||||||||||||||||||
| Ný stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins | ||||||||||||||||||||
| Í nýjum samþykktum um Fræðslumiðstöð atvinnulífsins kemur fram að stjórn félagsins skuli skipuð átta mönnum, þremur sem ASÍ tilnefnir, þremur sem SA tilnefna, einum sem BSRB tilnefnir, og einum sem fjármálaráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefna saman, kjörnum á aðalfund til eins árs í senn. Sjá nánar | ||||||||||||||||||||
|
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ætlað veigamikið hlutverk í framhaldsfræðslu |
||||||||||||||||||||
| Á aðalfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) þann 6. maí var samþykkt að BSRB, Samband íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðuneytið verði aðilar að félaginu, auk Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Sjá nánar | ||||||||||||||||||||
|
Þitt val - þín leið, DVD diskur um námsmöguleika fyrir sjómenn |
||||||||||||||||||||
|
Föstudaginn 30. apríl kynnti Sólrún Berþórsdóttir útgáfu DVD disks um námsmöguleika fyrir sjómenn. Samstarfsaðilar og styrktaraðilar verkefnisins eru: Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Sjómennt (fræðslusjóður sjómanna), Landsamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja. Sjá nánar |
||||||||||||||||||||
| Lög um framhaldsfræðslu | ||||||||||||||||||||
|
Frumvarp til laga um framhaldsfræðslu var samþykkt sem lög frá Alþingi 22. mars 2010. Lögin taka gildi 1. október 2010. Lögin taka til skipulags framhaldsfræðslu á vegum fræðsluaðila sem viðurkenningu hljóta samkvæmt lögum þessum og þátttöku ríkissjóðs í kostnaði við framkvæmd hennar. Sjá nánar |
||||||||||||||||||||
| Ráðgjöf og raunfærnimat í brennidepli | ||||||||||||||||||||
|
Dagana 11. og 12. janúar var haldin í Keflavík ráðstefna um ráðgjöf og raunfærnimat sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Norræna tengslanetið um nám fullorðinna stóðu fyrir. Ráðstefnuna sóttu rúmlega 60 manns hvaðanæva af landinu. Sjá nánar |
||||||||||||||||||||
| Ráðstefna um ráðgjöf og raunfærnimat 11. og 12. janúar 2010 | ||||||||||||||||||||
| Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og NVL á Ísland bjóða til ráðstefnu um ráðgjöf og raunfærnimat dagana 11.- 12. janúar á Hótel Keflavík í Reykjanesbæ. Fyrri daginn verður fjallað um náms- og starfsráðgjöf fyrir fullorðna og seinni daginn um raunfærnimat. Sjá nánar | ||||||||||||||||||||
| Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins 2009 | ||||||||||||||||||||
| Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hélt ársfund sinn þann 26. nóvember sl. Fundurinn var fyrri daginn af tveggja daga ráðstefnu sem var haldin í samstarfi við Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB. Yfirskrift ársfundar FA var „Úrræði til árangurs". Áhersla var lögð úrræði að grípa til að bregðast við því ástandi sem nú ríkir á íslenskum vinnumarkaði. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra setti fundinn. Frummælendur voru: Gestur Guðmundsson prófessor í félagsfræði menntunar við Háskóla Íslands, Þóra Ásgeirsdóttir ráðgjafi hjá ráðgjafastofunni Kná, Gylfi Dalmann Aðalsteinsson dósent í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands og Guðjónína Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Í dagskrárlok veitti Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífisins þeim Sigtryggi Gíslasyni og Vilhjálmi Erni Halldórssyni viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndir í námi fullorðinna á árinu 2009. Hérna má nálgast erindi ársfundar FA árið 2009 (Myndskeið) Hérna má nálgast ársrit Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Gátt 2009, sem kom út í tengslum við ársfundinn. |
||||||||||||||||||||
| Fyrirmyndir í námi fullorðinna | ||||||||||||||||||||
| Á ráðstefnunni „Úrræði til árangurs" hlutu þeir Sigtryggur Gíslason og Vilhjálmur Örn Halldórsson viðurkenningu fyrir að hafa skarað fram úr í námi fullorðinna á árinu 2009. Ráðstefna þessi var haldin sameiginlega af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Landsskrifstofu Menntaáætlunar ESB og fjallaði um menntun á vinnumarkaði í nútíð og framtíð. Sjá nánar | ||||||||||||||||||||
| Niðurstöður könnunar á meðal lesblindra | ||||||||||||||||||||
| Á ráðstefnunni „Úrræði til árangurs“kynnti Þóra Ásgeirsdóttir frá ráðgjafastofunni Kná niðurstöður úr rannsókn á árangri lestrar- og skriftarnámskeiða fyrir fullorðna sem glíma við læsisvanda. Í okkar samfélagi er stór hópur fullorðins fólks sem á í alvarlegum erfiðleikum með ritun og lestur. Í rannsókninni kemur greinilega fram hversu djúpstæð áhrif læsisvandinn hefur haft á líf þeirra einstaklinga sem glíma við hann og þann skort á umburðalyndi sem þau hafa upplifað og tækifærum sem þau hafa farið á mis við. Þá nefnir stór hluti sig hafa tekist á við einelti eða um 55%. Sjá nánar | ||||||||||||||||||||
|
Úrræði til árangurs: Ráðstefna um menntun á vinnumarkaði í nútíð og framtíð |
||||||||||||||||||||
| Í stað hefðbundins ársfundar hélt Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ráðstefnu undir heitinu „Úrræði til árangurs“ á Hótel Hilton Nordica dagana 26. og 27. nóvember í samstarfi við Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB. | ||||||||||||||||||||
| Fyrri daginn var áherslan á þau úrræði sem hægt er að grípa til hér og nú til þess að bregðast við því ástandi sem nú ríkir á íslenskum vinnumarkaði en seinni daginn var einkum hugað að menntun á vinnumarkaði til frambúðar.. | ||||||||||||||||||||
|
Framtíðarsamfélagið mun kalla á síaukna hæfni fólks á ýmsum sviðum, samanber rannsóknir í Evrópu á þörf atvinnulífsins fyrir færni og stefnumótun Evrópusambandsins „Ný hæfni fyrir ný störf". Hröð þróun í tækni og vísindum krefst þess að fólk læri fljótt og vel að nota nýjustu tækni en einnig að fólk geti unnið saman í hópum og leyst þau vandamál sem upp kunna að koma. Ef til vill er hægt að nýta sér fjármálakreppuna sem nú geisar í heiminum til þess að undirbúa fólk undir þessa framtíð. Vinnutími hefur styst og fjöldi atvinnulausra hefur margfaldast þannig að nú er lag að nota tímann til þess að mennta sig. Þar gegna t.d. símenntunarmið-stöðvarnar lykilhlutverki sem og allir þeir aðilar sem bjóða upp á óhefðbundin menntunarúrræði. Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins hafa lýst yfir vilja sínum til samstarfs í menntamálum og rætt verður hvernig mæta á þörfum atvinnulífsins fyrir færni til framtíðar. hvernig þeir ætla að fara að og hver mun bera ábyrgð á hverju. Taka þarf sérstakt tillit til hópa sem standa höllum fæti á vinnumarkaðnum og kynnt verða samstarfsverkefni sem snérist um tvo slíka; eldra fólk á vinnumarkaði og lesblinda. Ekki má heldur gleyma náms- og starfsráðgjöfinni sem er og verður ómissandi tæki þeirra sem vita ekki hvar þeir eiga að byrja. |
||||||||||||||||||||
| Stiklur 1 og 2 á Höfn í Hornafirði | ||||||||||||||||||||
| Dagana 19. og 20. nóvember voru kennslufræðinámskeiðin Stiklur 1 og Stiklur 2 haldin í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Námskeiðin sóttu níu starfsmenn og kennarar sem koma að fullorðinsfræðslu á vegum Þekkingarnets Austurlands og er það vel að verki staðið hjá heimamönnum á Höfn að ná þetta stórum hópi fullorðinsfræðsluaðila á námskeið. Almenn ánægja ríkti með að fá svona námskeið heim í hérað og var ákveðið að stefna að því að hafa fleiri Stiklunámskeið síðar í vetur, væntanlega í febrúar. Nú eru 7 mismunandi kennslufræðinámskeið í boði fyrir samstarfsaðila Fræðslumiðstöðvarinnar og fleiri eru í þróun. Sjá lýsingar á námskeiðunum hér | ||||||||||||||||||||
| Verðum við menntaðri eftir kreppuna? | ||||||||||||||||||||
| Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra skrifaði meðal annars þetta um menntamál í FRÉTTABLAÐIÐ 20. nóvember 2009: | ||||||||||||||||||||
|
Eitt af því sem vakið hefur áhyggjur mínar er hið mikla brottfall sem er í framhaldsskólum. Um það bil 95% þeirra sem útskrifast úr grunnskóla halda áfram í framhaldsskóla. Fyrir 25 ára aldur brautskrást hins vegar aðeins 60% af þeim sem hefja nám í framhaldsskóla. Brottfallið á þessum aldri er því 40%. Þetta eru háar tölur og alvarlegar og brýnt að leita leiða til að koma í veg fyrir svo mikið brottfall. Stór hluti þeirra sem útskrifast úr framhaldsskóla hefur nám í háskóla. Vegna þessa mikla brottfalls hefur á síðustu árum myndast menntunargjá hjá þjóðinni: þeim fjölgar sem eru með háskólapróf en um þriðjungur fólks á vinnumarkaði er einungis með próf úr grunnskóla. Í mennta- og menningarmálaráðuneytinu vinnum við nú að því að leita leiða til að minnka brottfall og vinnum að nýjum námskrám sem auka fjölbreytni framhaldsskólans. Sú vinna og það starf sem unnið er í samstarfi við félags- og tryggingamálaráðuneytið mun vonandi stuðla að því að við komum út úr kreppunni menntaðri þjóð en sú sem fór inn í kreppuna. Sjá nánar |
||||||||||||||||||||
| IÐAN fræðslusetur virkjar iðnaðarmenn í atvinnuleit | ||||||||||||||||||||
| Í vikunni var undirritaður samningur milli Vinnumálastofnunar, IÐUNNAR fræðsluseturs og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur. Náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR fræðsluseturs munu með þessum samningi hvetja iðnaðarmenn í atvinnuleit, sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins, til virkni. Iðnaðarmann sem eru á atvinnuleysisskrá geta á grundvelli þessa samnings átt von á að vera kallaðir til skylduviðtals á vegum IÐUNNAR fræðsluseturs, en ekki eingöngu hjá Vinnumálastofnun eins og áður hefur verið. Sjá nánar |
||||||||||||||||||||
| Fleiri náms- og starfsráðgjafar virkjaðir í þágu atvinnuleitenda | ||||||||||||||||||||
| Á miðvikudag var undirritaður samningur milli Vinnumálastofnunar, KVASIS, samtaka fræðslu- og símenntunarmiðstöðva og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur. Á vegum fræðslu- og símenntunarmiðstöðva starfa náms- og starfsráðgjafar, sem munu með þessum samningi taka þátt í að ná til atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hvetja þá til virkni. Sjá nánar | ||||||||||||||||||||
| Yfir 300 hafa bætt um betur | ||||||||||||||||||||
|
IÐAN fræðslusetur býður upp á raunfærnimat fyrir ófaglært starfsfólk í ýmsum iðngreinum. Verkefnið er kallað »Bættu um betur«. Tilgangurinn er að auðvelda fólki með starfsreynslu að ljúka löggildu iðnnámi. Skilyrði er að viðkomandi hafi unnið meira en fimm ár í greininni og náð 25 ára aldri. Staða hvers og eins er metin með tilliti til faggreinarinnar og leiðbeint um bóknám. Edda Jóhannesdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá Iðunni fræðslusetri, sagði að margir ófaglærðir en reyndir starfsmenn leiti nú eftir iðnréttindum til að geta farið til starfa í útlöndum. Frá því verkefnið hófst 2007 hafa um 300 manns farið í raunfærnimatið. Milli 50 og 60 af þeim eru þegar komnir með sveinspróf. Morgunblaðið 22.09.09 Eftir Guðna Einarsson |
||||||||||||||||||||
| Fræðslumiðstöð atvinnulífsins fær styrk úr Menntaáætlun Evrópusambandsins | ||||||||||||||||||||
| Nú í vikunni voru undirritaðir samningar um styrki úr Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins og var Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) einn styrkþega af þremur en hinir voru Myndlistaskólinn í Reykjavík og Landbúnaðarháskóli Íslands. Styrkupphæðir til einstakra verkefna eru rúmar 40 milljónir kr. Sjá nánar | ||||||||||||||||||||
| Könnun á norrænum verkfærum í tölvum sem notuð eru vegna raunfærnimats | ||||||||||||||||||||
| Raunfærni og raunfærnimat er í forgangi norræns samstarfs. Þess vegna fól sérfræðingahópur NVL Nationalt Videncenter for Realkompetencevurderinger i Danmark að sjá um könnun á verkfærum í tölvum sem notuð eru vegna raunfærnimats. Håkon Grunnet og Anne Marie Dahler-Larsen heimsóttu Ísland vegna þessarar könnunar. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins skipulagði heimsókn þeirra. Sjá nánar hér. | ||||||||||||||||||||
| Þjálfun í raunfærnimati - námskeið hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins 23.-24. september | ||||||||||||||||||||
|
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins mun halda námskeið 23. til 24. september vegna raunfærnimats ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er 15 kennslustundir og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Sjá nánari upplýsingar |
||||||||||||||||||||
| Verkefni Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins valið sem fyrirmyndarverkefni á fjölsóttri ráðstefnu í Prag | ||||||||||||||||||||
|
Tvö íslensk Leónardóverkefni voru valin fyrirmyndarverkefni á ráðstefnunni „Keeping On Track" var haldin í Prag þann 4. til 5. júní sl. en samtals voru sex verkefni valin sem fyrirmyndarverkefni úr hópi rúmlega 100 Evrópuverkefna. Verkefni Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins „Gildi starfa" var annað þessara verkefna og kynnti Ingibjörg E. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins verkefnið á ráðstefnunni. Verkefnið „Gildi starfa" eða „Value of work" gengur út á að þróa og prófa mat á færni út frá ákveðnum fyrirfram skilgreindum viðmiðum og að hanna leiðbeinandi efni sem nýst gæti til yfirfærslu raunfærnimats í önnur störf. Þetta var samstarfsverkefni sex Evrópulanda og í hverju þeirra tóku fyrirtæki virkan þátt í vinnunni sem er mikilvægt skref í því að veita fyrirtækjum góða yfirsýn yfir þann mannauð sem þau hafa yfir að ráða. Sjá nánar |
||||||||||||||||||||
| 11 útskrifast úr Færni í ferðaþjónustu frá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum | ||||||||||||||||||||
|
Í lok maí útskrifuðust 11 manns úr 160 kennslustunda námi sem nefnist Færni í ferðaþjónustu. Framkvæmd og kennsla var í höndum Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Sjá nánar hér. |
||||||||||||||||||||
| Námskeið um glærugerð, hljóðglærur og hljóðritanir | ||||||||||||||||||||
|
Námskeiðið verður haldið hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum laugardaginn 25. apríl. Á námskeiðinu verður fjallað um forrit fyrir glærugerð, hljóðglærugerð og hljóðritanir til að birta á Netinu og spila í tónhlöðum.Námsþátturinn verður 7 kennslustundir. Sjá nánar hér |
||||||||||||||||||||
| Stiklur og hljóðglærur | ||||||||||||||||||||
|
Námskeiðið verður haldið hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða dagana 28. og 29. apríl. Námskeiðið er ætlað leiðbeinendum fullorðinna. Fyrri daginn verður fjallað um fullorðna nemendur og forsendur þeirra; einkenni fullorðinna námsmanna, mismunandi námsnálgun og aðferðir. Lögð er áhersla á þátttöku, verkefnavinnu og hagnýta tengingu. Námsþátturinn verður 7 kennslustundir. Seinni dag námskeiðsins verður fjallað um forrit fyrir glærugerð, hljóðglærugerð og hljóðritanir til að birta á Netinu og spila í tónhlöðum. Námsþátturinn verður 7 kennslustundir. Sjá nánar hér |
||||||||||||||||||||
| Fræðslumiðstöð atvinnulífsins falin umsjón með NVL | ||||||||||||||||||||
|
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur verið falið að vista NVL ,Norrænt tengslanet um nám fullorðinna á Íslandi, fram til 31. Desember 2011. NVL er samstarfsvettvangur á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar til að auka og bæta fullorðinsfræðslu á Norðurlöndunum og efla samkeppnishæfni þjóðanna. Höfuðstöðvar verkefnisins eru hjá VOX, norsku fullorðinsfræðslustofnuninni og framkvæmdastjóri þess er Antra Carlsen. Fulltrúi Íslands er Sigrún Kristín Magnúsdóttir, sérfræðingur hjá FA. Nýlega fór fram mat á samstarfinu og er það nú enn betur undirbúið til að takast á við verkefni framtíðarinnar. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu NVL, http://www.nordvux.net/ |
||||||||||||||||||||
| Menntatorg | ||||||||||||||||||||
|
Föstudaginn 6. mars var opið hús í Skeifunni 8 frá kl. 14-18 þar kynntu fræðsluaðilar ýmis úrræði fyrir atvinnulausa. Sjá nánar hér |
||||||||||||||||||||
| Námskeið fyrir kennara og leiðbeinendur í íslensku fyrir útlendinga á fullorðinsaldri . | ||||||||||||||||||||
|
Í haust kom út hjá menntamálaráðuneytinu ný námsskrá í íslensku fyrir útlendinga á fullorðinsaldri. Þeim sem hyggjast kenna eftir þessari námsskrá bauðst nú stutt kennslufræðinámskeið á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Námskeiðið var haldið í gamla barnaskólans á Akureyri við Skólastíg 2, dagana 20. febrúar og 21. febrúar. Sjá nánar hér |
||||||||||||||||||||
| Námskeið í raunfærnimati | ||||||||||||||||||||
|
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins stóð fyrir tveimur námskeiðum fyrir matsaðila (kennara/fagaðila, verkefnastjóra í raunfærnimati, náms- og starfsráðgjafa) í raunfærnimati. Á námskeiðinu var þjálfuð færni matsaðila í framkvæmd raunfærnimats. Námskeiðin fóru fram í Skeifunni 8, 2. hæð, 25. og 26, febrúar 2009. Sjá nánar hér |
||||||||||||||||||||
| Ársfundi lokið | ||||||||||||||||||||
|
Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins 2008 var haldinn á Grand Hóteli 20. nóvember. Fundinn, sem er 6. ársfundur FA, sóttu um 80 manns. Egill Þórarinsson og Svanur Þór Brandsson sögðu frá þátttöku sinni í raunfærnimatsverkefninu „Bættu um betur" í húsasmíði. IÐAN - fræðslusetur sá um verkefnið sem lauk í júní 2007. Egill og Svanur luku sveinsprófum sínum í maí 2008. Ingegerd Green flutti fyrirlestur um færniþróun en samkvæmt skilgreiningu hennar felur færni ekki aðeins í sér getu, þekkingu og verkfærni heldur einnig vilja til þess að skapa virðisauka með verkum sínum. Dr. David Blustein ráðgjafasálfræðingur fjallaði um nútímalegan vinnumarkað sem gerir kröfu til þess að starfsmenn uppfæri stöðugt færni sína í takti við tíðarandann. Halldór Eyþórsson og Ómar Örn Jónsson fengu viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndir í námi fullorðinna. Í viðurkenningarskyni færði Fræðslumiðstöð atvinnulífsins þeim Halldóri og Ómari fartölvur með forritum. Á viðurkenningarskjölum þeirra segir að handhafi skjalsins hafi náð góðum árangri, sýnt frumkvæði og kjark, yfirstigið hindranir og geti hvatt aðra til náms. GÁTT 2008 var dreift á ársfundinum. Að þessu sinni birtast 27 greinar og pistlar í GÁTT ársriti Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um fullorðisnfræðslu og starfsmenntun. Meginefni ritsins eru gæði og gæðaviðmið í fullorðinsfræðslu. Einnig er greint frá starfsemi FA og verkefnum sem unnið hefur verið að á árinu 2008. Meira... |
||||||||||||||||||||
| Samstarf um menntunarúrræði | ||||||||||||||||||||
|
Í ljósi þeirra miklu hremminga sem hafa gengið yfir íslenskt samfélag síðustu vikurnar má gera ráð fyrir mikilli lægð á næsta ári með meira atvinnuleysi hér á landi en menn hafa séð um langt árabil. Vegna þessara sérstöku aðstæðna sem hafa skapast hefur stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) sett af stað samstarfshóp um menntunarúrræði. Meira... |
||||||||||||||||||||
| Tölur frá Hagstofunni um nemendur og námslok við 24 ára aldur | ||||||||||||||||||||
|
Í hefti sem Hagstofa Íslands gaf út þann 3. júní sl. er fjallað um nám og námslok þeirra sem fæddust á Íslandi árið 1982. Stuðst er við nemendaskrá og prófaskrá Hagstofunnar og tekið mið af því námi sem þessir einstaklingar höfðu lokið árið 2006 - árið sem þau eru 24 ára. Meira... |
||||||||||||||||||||
| Farskólinn útskrifar | ||||||||||||||||||||
|
Farskólinn, miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra, útskrifaði námsmenn í Jarðlagnatækni, Fagnámskeiði 1og Aftur í nám. Meira... |
||||||||||||||||||||
| Gæðaráðstefna NVL í Nynäshamn | ||||||||||||||||||||
|
Um miðjan maí sl. var haldin ráðstefna um gæði í fullorðinsfræðslu í Nynäshamn í Svíþjóð. Norræna ráðherranefndin og stýrihópur nefndarinnar í fullorðinsfræðslu, SVL, leggja mikla áherslu á hvers konar gæði í fullorðinsfræðslu. Meira... |
||||||||||||||||||||
| Faghópar NVL funda | ||||||||||||||||||||
|
Meðlimir faghópa NVL á Íslandi hittust á fundi í Skeifunni 8, þriðjudaginn 15. apríl sl. Markmið fundarins var kynning á verkefnum faghópa NVL á Íslandi. Starfsemi faghópanna hefur lagt lóð á vogarskálarnir í mikilvægri umræðu um fullorðinsfræðslu á Íslandi. Meira... |
||||||||||||||||||||
| Nemendabókhald FA og samstarfsaðila | ||||||||||||||||||||
|
Á árinu 2006 var gerður samningur milli Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og Betri lausna um þarfagreiningu hjá samstarfsaðilum FA. Í febrúar síðast liðnum var gerð verðkönnun hjá 7 fyrirtækjum. Verðhugmyndi bárust frá tveimur fyrirtækjum. Verðhugmynd Stúdíu ehf þótti álitlegri. Samningar um leigu FA á nemendabókhaldi og kennslukerfi Stúdíu ehf voru undirritaðir 11. apríl s.l. Meira... |
||||||||||||||||||||
| Nýir kjarasamningar: Ráðstafanir og áherslur á sviði menntamála | ||||||||||||||||||||
|
Ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins eru sammála um ráðstafanir og áherslur á sviði menntamála, með sérstakri skírskotun til menntunar fólks á vinnumarkaði með takmarkaða menntun. Stefnt er að því að ekki fleiri en 10% fólks á vinnumarkaði verði án viðurkenndrar starfs- eða framhaldsskólamenntunar árið 2020. Meira... |
||||||||||||||||||||
| Virk samfélagsþátttaka frá sjónarhóli símenntunar | ||||||||||||||||||||
|
Boðið var til kynningar og umræðna um vald, lýðræði og virka samfélagsþátttöku á málþingi í Norræna húsinu föstudaginn 16. nóvember 2007. Að málþinginu stóð NVL á Íslandi sem er norrænt tengslanet um nám fullorðinna og Leikn, samtök fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi. Tilefni þessa málþings var m.a. að vekja athygli á safnritinu DEMOS og gera tilraun til að verða kveikja að umræðu um vald, menntun og lýðræði í okkar samfélagi. Meira... |
||||||||||||||||||||
| Náms- og starfsráðgjöf á vinnustað | ||||||||||||||||||||
|
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og símenntunarmiðstöðvar um land allt gerðu með sér samninga um náms- og starfsráðgjöf á vinnustað. Í samningunum felst að náms-og starfsráðgjafar á vegum símenntunarmiðstöðva fara á vinnustaði á heimaslóðum sínum, kynna ráðgjöfina og veita einstaklingsviðtöl um nám og störf. Áhersla er lögð á að hvetja fólk til virkrar símenntunar. . Hringdu ef þú hefur áhuga á að fá náms- og starfsráðgjafa á vinnustað þinn.
. Smelltu hér ef þú vilt lesa um náms- og starfsráðgjöf á vinnustað í tímaritinu Gátt 2006. Smelltu hér ef þú vilt lesa í bæklingi um raunfærni og raunfærnimat. |
Þú ert hér:
ForsíðaLeit
Toppmynd
















